Forsala miða á Final4

Það styttist í stóru stundina en um helgina leika m.fl. karla og kvenna í undan úrslitum Coca Cola bikarsins. Forsala miða er í fullum gangi og er hægt að kaupa miða í forsölu á Ásvöllum. Við hvetjum alla til að kaupa miða í forsölu því þá rennur allur ágóði til Hauka.

Stelpurnar hefja leik á fimmtudaginn og hefst leikurinn á móti Fram kl. 19:30. Dagskráin hefst kl. 17:30 á Ásvöllum og þar verða seldar léttar veitingar, andlitsmálun og kl. 18:30 verða fríar rútuferðir í höllina. Það er líka hægt að kaupa miða á þennan leik í gegnum þessa linka hér að neðan:

Tix (fullorðinn): https://www.tix.is/is/buyingflow/tickets/3688/so/
Tix (barn): https://www.tix.is/is/buyingflow/tickets/3688/so/

Strákarnir eiga svo leik við Aftureldingu kl. 19:30 á föstudaginn. Dagskráin er sú sama og á fimmtudeginum, hún hefst kl. 17:30 og svo kl. 18:30 verða fríar rútuferðir í höllina. Einnig er hægt að kaupa miða í gegnum þessa linka hér að neðan:

Tix (fullorðinn): https://www.tix.is/is/buyingflow/tickets/3688/so/
Tix (barn 6-15 ára): https://www.tix.is/is/buyingflow/tickets/3688/so/

ATH!

TILBOÐ SEM GILDIR EINUNGIS Í MIÐASÖLUNNI Á ÁSVÖLLUM: Ef keyptir eru miðar á bæði kvenna og karla leikina í Höllinni, þá er verðið 3.000 kr. fyrir fullorðinn og 600 kr. fyrir barn (15 ára og yngri).

Almennt verð á EINN leik í höllinni er: 2.000 kr. fyrir fullorðinn og 500 kr. fyrir barn (6-15 ára).

Frítt er á leikinn fyrir börn undir 6 ára.

 

hauhöll