Errea búningadagur þriðjudaginn 5. desember hjá knattspyrnunni

Þriðjudaginn 5. desember verður haldinn Errea búningadagur á Ásvöllum þar sem knattspyrnuiðkendunum gefst tækifæri á því að máta og velja stærðina á sínum keppnisbúningi sem fylgir með æfingagjöldunum. Í ár fylgir blái varabúningur félagsins með, en sá þykir einstaklega vel heppnaður í útliti, og því munu Haukar verða bláir á keppnisvellinum á árinu 2018. Samtímis gefst iðkendum tækifæri til þess að versla annan æfinga- og keppnisbúnað frá Errea á góðum kjörum.

Foreldrar iðkenda í 8. – 5. flokki mæta milli kl. 16-18.

Foreldrar iðkenda í 4. – 2. flokki mæta milli kl. 18-20.