Catarina og Stefanía semja við knattspyrnudeild Hauka

Catarina Lima og Stefanía Ósk Þórisdóttir hafa skrifað undir samninga við knattspyrnudeild Hauka.

Stefanía gekk til liðs við Hauka vorið 2015 og skoraði hún fjögur mörk í 13 leikjum í B riðli 1. deildar kvenna á síðasta tímabili.

Catarina Lima er á 18 aldursári og flutti hún ásamt fjölskyldu sinni til Íslands á síðasta ári frá Grænhöfðaeyjum. Hún hóf að æfa með Haukum í nóvember sl. og hefur tekið miklum framförum og því ákvað knattspyrnudeild Hauka að semja við Catarinu.

IMG_9652