Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Í fremstu röð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar HaukaHaukafólk ærðist af fögnuði nú á dögunum þegar Einar Örn Jónsson tryggði liði sínu sigur gegn sterku ungversku liði og sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Áhorfendapallarnir svignuðu undan trylltum dansi fjölmennrar stuðningssveitar þar sem spenna, stress og gleði fengu útrás með þeim hætti sem einungis íþróttaviðburðir geta framkallað. Leikmenn föðmuðust í gleðivímu og ungir iðkendur sátu dreymnir á svip. Það er á stundum sem þessari sem afl íþróttanna birtist okkur sem sterkast. Engir sundrungarkraftar fá ráðið við þann sameiningarmátt sem íþróttir geta verið. Betri vettvangur fyrir samveru er vandfundinn. Íþróttir brúa bil kynslóða, leggja grunn að ævarandi vináttuböndum og veita skjól gegn hinu hversdaglega annríki. Því er svo mikilvægt á tímum sem þessum þegar sundrungu, sárindum og óvissu vex ásmegin að nýta þann þrótt sem býr í íþróttum.

Meistaraflokkar Hauka hafa náð frábærum árangri á undanförnum árum og yngri iðkendum hefur fjölgað. Velsæld og vegsemd félagsins verður þó aldrei mæld með verðlauna- eða iðkendafjölda einum saman. Haukar eru samfélag og árangur okkar birtist því ekki hvað síst í því hvernig okkur líður í þessu félagi, hvort sem litið er til yngsta hópsins sem hleypur glaðbeittur um þrautabrautina á laugardagsmorgnum eða stuðningsmanna sem skeggræða stöðuna á uppákomum Hauka í horni. Markmið handknattleiksdeildar er að Haukar séu fjölskylduvænt félag í fremstu röð. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að skapa fjölskylduvæna umgjörð í kringum heimaleiki meistaraflokkanna, m.a. með því koma upp leikaðstöðu með barnagæslu fyrir yngstu kynslóðina og vera með ýmsar uppákomur þar sem börn og unglingar geta tekið virkan þátt og komist í návígi við leikmenn. Við leggjum sömuleiðis áherslu á að leikmenn meistaraflokkanna séu góðar fyrirmyndir yngri iðkenda og heimsækja þeir t.d. yngri flokka æfingar með reglulegu millibili.

Styrkur Hauka hefur ætíð falist í þeim mikla fjölda sem hefur verið reiðubúinn að leggja félaginu lið. Á bak við glæstan árangur á handboltavellinum býr ríkulegt framlag stórrar sveitar sjálfboðaliða. Við fögnum hverjum nýjum liðsmanni. Vilt þú taka þátt í að móta handboltann hjá Haukum?

Þorvarður Tjörvi Ólafsson
Formaður handknattleiksdeildar Hauka

*Pistill í Haukablaðinu Neglan

 

Evrópukeppnin eflir íslenskan handknattleik

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar HaukaUndanfarna daga, vikur og mánuði hefur fjöldi fólks lagt á sig mikla vinnu, veitt styrki og hvatningu til að hópur manna geti látið draum sinn rætast um að etja kappi við sterk evrópsk lið á handboltavellinum. Þátttaka í Evrópukeppni í handbolta er fjarri því að vera sú tekjulind sem þekkist úr knattspyrnuheiminum. Því eru þeir til sem spyrja sig hvort íslensk lið eigi yfirhöfuð erindi í keppni utan landsteinana með þeim kostnaði og vinnu sem því fylgir. Haukar hafa yfirleitt svarað þessum efasemdum á einn veg. Þetta er ellefta árið sem félagið tekur þátt í keppni þeirra bestu og þrátt fyrir efnahagsþrengingar undangenginna missera hefur félagið valið að setja þátttöku í Evrópukeppni framalega í forgangsröðunina. Fyrir því liggja þrjár meginástæður:

Í fyrsta lagi lítum við á það sem skyldu okkar sem Íslandsmeistara að halda lofti íslensks handknattleiks hátt á lofti. Við erum handknattleiksþjóð, höfum oft náð góðum árangri á alþjóðavettvangi og eigum fullt erindi í keppni fremstu félagsliða álfunnar. Í öðru lagi viljum við búa handknattleiksmenn okkar undir þátttöku í landsliði og sterkum félagsliðum utan landsteinanna þangað sem margir ungir handknattleiksmenn horfa með því að veita þeim þá reynslu sem fylgir Evrópuleikjum. Í þriðja lagi erum við Haukafólk sannfært um að þátttaka í Evrópukeppni er ein af lykilforsendum þess árangurs sem við höfum náð á innlendum vettvangi undafarin ár. Kastljós fjölmiðla beinist oft að misjöfnu gengi liða í innlendri deildarkeppni þegar þau leika í Evrópukeppni á sama tíma. Minni athygli beinist að því að það eru einmitt sömu lið sem fara með sigur af hólmi í úrslitakeppnum og bikarkeppnum þar sem allt getur oltið á úrslitum eins leiks. Þessi tilhneiging er engin tilviljun. Lið sem búa að reynslu frá þátttöku í Evrópukeppni geta oft á ögurstundu kallað fram þá einstöku blöndu af sterkri einbeitingu, sannri samheldni, dýrslegri baráttu og stóískri ró sem þátttaka í Evrópukeppnum færir liðum sem nýta hana rétt. Góður árangur Hauka og fjölmargra leikmanna sem hafa verið þátttakendur í ævintýrinu með okkur undanfarin ár er ekki síst tilkomin vegna þeirrar reynslu sem hefur safnast í áranna rás á handboltavöllum víðs vegar um álfuna.

Í síðasta mánuði lögðu Haukastrákarnir land undir fót og náðu mjög hagstæðum úrslitum gegn sterku pólsku liði sem kom viku seinna vængbrotið til landsins og gáfust upp eftir frábæran fyrri hálfleik okkar manna þar sem einbeiting, vilji og barátta skein úr hverju andliti. Í gær lék liðið fyrri leik sinn gegn sterku ungversku liði, Pler KC, og lauk leiknum með jafntefli 26-26. Í leiknum skorti verulega á þessu einstöku blöndu sem ég lýsti hér á undan. Áhorfendur voru sömuleiðis fremur fámennir. Eru leikmenn og stuðningsmenn íslensks handknattleiks að gleyma því hvað þarf til að ná árangri í Evrópukeppni? Höldum við að við eigum möguleika á að komast áfram án þess að allt sé lagt í sölurnar og án áttunda mannsins í pöllunum? Strákarnir ætla að svara fyrir sitt leyti inn á vellinum síðar í dag í hreinum úrslitaleik þegar liðin mætast á ný kl. 18 á Ásvöllum. Hvert verður svar stuðningsmanna íslensks handknattleiks? Ég heiti á alla stuðningsmenn, hvar í liði sem þeir skipa sér á innlendum vettvangi, að fjölmenna á Ásvelli og styðja við bakið á íslensku félagsliði. Við þurfum á ykkar stuðningi að halda.

 Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka

 

78 ára afmæli Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Ávarp á 78 afmælisdegi 

knattspyrnufélagsins hauka

12 apríl 2009. 

Í dag minnumst við þess að 78 ár eru liðin frá því að þrettán strákar komu saman og stofnuðu íþróttafélag sem átti að starfa á grundvelli KFUM.  

Allir voru strákarnir aðdáendur og vinir séra Friðriks Friðrikssonar, þess mikla æskulýðsfrömuðar.  Séra Friðrik á heiðurinn að því að velja nafn félagsins auk þess sem hann ásamt öðrum forystumönnum KFUM aðstoðaði strákana með ýmsum hætti. 

Á þessum hátíðardegi, sem sameinar hátíð kristinna manna og afmælisdag Knattspyrnufélagsins Hauka þótti okkur við hæfi að minnast Séra Friðriks  og þætti KFUM í sögu Hauka. 

Saga Knattspyrnufélagsins Hauka er órjúfanlegur hluti af sögu séra Friðriks og ekki síður sögu KFUM.  Þótt þau tengsl hafi í áranna rás verið með ýmsum hætti þá er römm sú taug. 

Lesa meira...
 

Áfram Haukar!

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar

Hafnarfjörður er íþróttabær. Starfsemi íþróttafélaga er mikilvæg fyrir bæjarfélagið enda frækið íþróttafólk besta kynning sem bæjarfélagið getur fengið.  

Haukar njóta góðs af því að stjórn bæjarfélagsins hefur mikinn metnað fyrir hönd íþróttafélaganna.  Það eru fá sveitarfélög sem styðja jafn vel við starfsemi íþróttafélaga.  

Á móti eru gerðar kröfur til Hauka.  Á herðum okkar hvílir ekki eingöngu sú skylda að kenna íþróttir heldur ekki síður að huga að félagsþroska, líðan iðkenda, áhuga þeirra og ástæður brottfalls.

Íþróttir standa fyrir leikgleði, félagsskap og árangur.  Nú eru blikur á lofti í þjóðfélagsmálum og erfiðleikar blasa við mörgun heimilum.  Það er á slíkum tímum sem félagsleg samstaða og samkennd skiptir meira máli en allt annað.  Þá félagslegu samkennd er hægt að nálgast í starfi Haukanna.  

Það skiptir miklu máli að koma í jákvæðan félagsskap, þar sem málið er að gleðjast með börnum sínum eða barnabörnum, hitta gamla kunninga og spjalla.  Það er ekki til betri leið til að losna við leiða og áhyggjur.   

Þátttaka í starfi Haukanna, hvar sem er og hvenær sem er, er gleðistund.  Góður félagsskapur er ómetanlegt vegarnesti til að takast á við dagleg vandamál.  Við hvetjum því alla til að leggja leið sína á Ásvelli með fjölskylduna, á æfingu eða í leik, og njóta stundarinnar.  

Haukar bjóða upp á fjölbreytta þjónustu, allt frá leikjaskóla fyrir 2ja ára haukara og upp í boltafimi og spilakvöld fyrir þá elstu, og allt þar á milli.  Það er örugglega eitthvað við þitt hæfi. 

Það eru allir alltaf velkomnir.  

Áfram Haukar!

 
Borði


Molar

Haukar voru stofnaðir 12. apríl 1931.