Alexandra fyrirliði í 7-0 sigri Íslands gegn Svartfjallalandi

Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður Hauka, lék með U19 ára landsliði kvenna í dag er liðið sigraði Svartfjallaland 7-0 í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins. Riðill Íslands er spilaður í Duisburg í Þýskalandi. Alexandra er fyrirliði liðsins.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik settu stelpurnar í fluggírinn og skoruðu eins og áður sagði 7 mörk.

Hlín Ei­ríks­dótt­ir skoraði tvö mörk og þær Anita Daní­els­dótt­ir, Sól­veig Jó­hann­es­dótt­ir, Stef­an­ía Ragn­ars­dótt­ir, Krist­ín Dís Árna­dótt­ir og Berg­dís Fann­ey Ein­ars­dótt­ir skoruðu sitt markið hver.

Ísland mæt­ir Kosóvó á föstu­dag­inn og Þýskalandi á mánu­dag­inn. Hægt er að fylgjast með leikjum liðsins á Facebook síðu KSÍ.

Áfram Ísland!

Alexandra, lengst til hægri.í aftari röð. Ljósm. KSÍ.