Aldrei fleiri sótt Stelpubúðirnar


Níundu Stelpubúðum Helenu og Hauka um helgina og var helgin frábær í alla staði. Ótrúlega flottar stelpur mættu og en alls tóku 111 stelpur þátt um helgina frá félögum víðsvegar af landinu. Er það met mæting í Stelpubúðirnar.

Stelpurnar lögðu sig fram og sýndu flotta takta og miklar framfarir um helgina.

Viljum við þakka öllum þeim sem komu um helgina og þeim sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu um helgina. Hvort sem það var að þjálfa á gólfinu eða standa vaktina í eldhúsinu. Það er ekki hægt að halda svona búðir án alls þess fólks.

Takk fyrir okkur og sjáumst að ári.