Aftur mæta Haukastúlkur Fram

Guðrún og stelpurnar í meistarflokki eiga mikilvægan leik fyrir höndum. Mynd: Vísir/Ernir

Meistaraflokkur kvenna í handbolt fær í kvöld tækifæri til þess að hefna fyrir tapið í bikarúrslitum fyrir Fram þegar að liðin mætast í næst síðustu umferð Olís deildar kvenna. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni kl. 19:30 í kvöld, miðvikudagskvöld, og eru liðin í harðri baráttu í efstu sætum deildarinnar en með sigri geta Haukastúlkur farið upp fyrir Fram í töflunni.

Það verður því hart barist í Schenkerhöllinni í kvöld og því um að gera fyrir Haukafólk að fjölmenna til þess að styðja stelpurnar í baráttunni. Áfram Haukar!