Afhending á söluvörum Errea og kkd. á morgun, föstudag.

errea-208x185Vörur sem keyptar voru á söludögum Errea og Hauka verða afhentar á morgun, föstudaginn 21 október, fyrir leikinn hjá mfl. karla á móti Þór Þ. sem hefst kl. 19:15

Hægt verður að ná í vörurnar milli kl. 17:00 – 19:00 í anddyri Ásvalla. Við hvetjum líka foreldra til að mæta á leikin hjá mfl. karla á eftir og hvetja þá áfram í baráttunni.

Þeir foreldrar sem komast ekki á þessum tíma geta náð í vörurnar á Ásvelli alla næstu viku eða sent póst á ivar@haukar.is og látið merkja vörurnar og setja fram í afgreiðslu.