Actavis mótið á fullu alla helgina í Schenkerhöllinni

actavis 1Actavis mótið er búið að ganga gríðarlega vel og var íþróttahúsið að Ásvöllum þéttsetið á laugardeginum er drengir á aldrinum 6-11 ára voru að spila körfubolta á sex völlum í íþróttasalnum.

Flott tilþrif sáust allan daginn og ljóst er að þarna voru að spila framtíðar landsliðsmenn.

Í dag, sunnudaginn 15. jan., eru stelpur á aldrinum 6-11 ára að spila og byrjar dagurinn gríðarlega vel er 1. bekkur fyllti húsið ásamt aðstandendum.

actavis 2