Aaryon Williams til Hauka

Haukar hafa gengið frá ráðningu erlends leikmanns fyrir komandi leiktíð í 1. deildinni. Heitir sá Aaryon Williams og lék með New Mexico Highlands í 2. deild háskólaboltans vestra á síðustu leiktíð.

Williams var meiddur allt tímabilið 2010-2011 og náði sér ekki almennilega á strik fyrr en á síðari hluta síðasta tímabils þar sem hann var með 10 stig að meðaltali og tæp 5 fráköst.

Williams á vonandi eftir að vekja kátínu á Ásvöllum á komandi leiktíð en hann ber viðurnefnið „Bird“ og þykir ekki leiðinlegt að troða knettinum við hvert það tækifæri sem honum gefst.