Haukastelpur Lengjubikarmeistarar 2015

lengjubikarmestarar HaukarMfl. kvenna í körfu varð á laugardaginn Lengjubikarmeistari eftir öruggan sigur á Keflavík í úrslitaleiknum.

Stelpurnar sigruðu leikinn 70 – 47 og sýndu klærnar strax frá byrjun. Þær náðu strax góðum tökum á leiknum og byggðu svo upp góða forystu jafnt og þétt.

Liðið spilaði hörku varnarleik allan leikinn og pressuðu stífa maður á mann vörn út um allan völl og var hjálparvörnin mjög góð. Sóknarleikurinn var góður og óeigingjarn og áttu Keflvíkingar fá svör við góðum leik Haukakvenna.

Allir leikmenn spiluðu vel, Helena stjórnaði liðinu eins og sannur hershöfðingi og Pálína, Auður og Sylvía voru gríðarlega duglegar í vörninni og stálu mörgum boltum.

Góð byrjun á leiktíðinni hjá stelpunum og verður gaman að fylgjast með þeim í vetur.

Til hamingju stelpur með sigurinn.