Haukar mæta Fram á fimmtudaginn kl. 19:15

Haukar logo fréttirÞað má búast við hörkuleik á Ásvöllum á fimmtudaginn þegar Haukar taka á móti Frömurum í 4. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19:15.

Eftir þrjá leiki eru okkar menn með þrjú stig í níunda sæti; sigurleikur gegn Grindavík á heimavelli en tap gegn Víking Ólafsvík og KA á útivöllum.
Framarar eru í 10. sæti með eitt stig og því má reikna með að hart verði barist um stigin þrjú.

Strákarnir okkar fengu góðan stuðning áhorfenda á Ásvöllum gegn Grindavík og það er afar mikilvægt að við mætum á völlinn á fimmtudaginn og látum í okkur heyra.

Það er ágætis veðurspá fyrir fimmtudaginn og því tilvalið að mæta á völlinn.

Áfram Haukar!