Undanúrslitin í Olísdeildinni hefjast á morgun, Haukar fara að Hlíðarenda.

Undanúrslit, leikur 1, Valur - Haukar, 16. apríl 2015Á morgun, fimmtudag, hefjast undanúrslitin í Olísdeild karla. Haukar mæta Val og er leikurinn að Hlíðarenda og byrjar kl. 19:30. Bæði liðin unnu andstæðinga sína í 8 liða úrslitum 2-0, Haukar FH og Valur Fram.
Valsmenn hafa átt gott tímabil og urðu deildarmeistarar þeir eru því mjög öflugur andstæðingur og má með sanni segja að okkar menn þurfi að eiga góða leiki til að leggja þá að velli, en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.
Í vetur hafa þessi lið mæst þrisvar og var fyrsti leikurinn heimaleikur okkar í byrjun október. Þann leik unnu Haukapiltar, 25-24 (14-14). Hinir tveir leikirnir fóru báðir fram að Hlíðarenda og töpuðust báðir. Sá fyrri um miðjan desember og endaði 33-26 (17-10), sá seinni núna 19. mars og endaði hann 25-23 (10-12).
Möguleiki okkar er ekki síst fólginn í því að við sýnum öll samstöðu og mætum á völlinn og látum vel í okkur heyra. Byrjum annað kvöld í Vodafonehöllinni og mætum í rauðu.

Áfram Haukar!