Haukar – Tindastóll kl. 19:15 í kvöld – Miðasala hefst kl. 18

emilbarjaHaukar munu etja kappi við Tindastól í fjórða leiknum í undanúrslitum Dominos deildar í kvöld kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Haukar unnu frábæran sigur í Síkinu í þriðja leiknum og spiluðu mjög vel, allt liðið var vel gírað og baráttan var til fyrirmyndar. Strákarnir eru staðráðnir í að ná fram oddaleik á Sauðárkróki á föstudaginn og því þarf sigur að vinnast í kvöld.

Stuðnings menn Hauka hafa mætt vel og látið vel í sér heyra í síðustu leikjum. En nú hvetjum við alla til að mæta snemma, í rauðu, og hvetja strákana áfram í þessum mikilvæga leik.

Hamborgararnir og pizzur verða auðvitað á sínum stað – Fyllum Schenkerhöllina