Haukar – ÍR í kvöld kl. 19:15 í Schenkerhöllinni

h-irÍRingar munu mæta í Schenkerhöllina í kvöld, fimmtudaginn 5. mars, kl. 19:15 og etja kappi við heimamenn í Dominos deild karla.

Haukar hafa unnið síðustu fjóra leiki sína og hafa verið að spila einstaklega vel. Varnarleikur liðsins hefur verið að svínvirka og hafa andstæðingar strákanna átt í stökustu vandræðum með að skora. Sigur hefur unnist á móti, Stjörnunni, KR, Þór Þ. og Njarðvík og nú sitja Haukar í þriðja sæti deildarinnar með 12 sigra og 8 tapleiki.

ÍR eru mikillri botnbaráttu og geta með sigri í kvöld nánast tryggt sæti sitt í Dominos deildinni og munu væntanlega koma dýrvitlausir til leiks og komnir með smá sjálfstraust eftir góðan sigur í síðasta leik á móti Snæfell. Okkar fyrrverandi þjálfari, Bjarni Magnússon stýrir ÍR liðinu og auðvitað bjóðum við hann velkominn aftur í Schenkerhöllina.

Búast má við hörku leik í kvöld þar sem bæði lið eru að berjast fyrir mikilvægum stigum.

Hamborgararnir verða auðvitað á sínum stað og hvetjum við fólk til að mæta snemma, fá sér börger og ræða málin fyrir leik.