Frítt á stórleik FH og Hauka í Kaplakrika í kvöld

Í kvöld er FH - Haukar. 21 umferð Olísdeildar kk. 5. mars 2015.Hafnarfjarðarslagur í Olísdeild karla þegar okkar strákar mæta FH í Kaplakrika. Frítt er á leikinn í boði Rio Tinto Alcan en hann hefst kl. 19:30. Staða liðanna fyrir leikinn er þannig að Haukar eru í 7. sæti með 19 stig en FH er í því 4. með 22 stig. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur í Olísdeildinni. Í september s.l. áttust liðin við í Krikanum og þá hafði FH betur 25-24 (13-10). Í nóvember léku liðin síðan Schenkerhöllinni og þá varð jafntefli 22-22 (13-8).
Það verður vafalítið hart barist í kvöld um þessi tvö stig sem eru í boði og er mikilvægt að við fjölmennum í Krikann styðjum Hauka til sigurs.

Áfram Haukar!