Haukar – Grótta í Olísdeild kvenna á morgun

Haukar vs Grótta, 14. umferð Olísdeildar kv. 27. jan. 2015Haukar, sem unnið hafa síðustu fimm leiki sína, taka á morgun að móti toppliði Gróttu og hefst leikurinn kl. 19:30. Grótta er sem stendur í efsta sæti deildarinnar með 24 stig en Haukar sækja nú ört á toppliðin og eru með 16 stig í fimmta sæti. Liðin áttust við á Seltjarnarnesi í byrjun nóvember og þá höfðu Gróttustelpur betur 23-19 eftir að liðin höfðu skipst á að leiða leikinn. Það hefur verið frábæt að fylgjast með þeim krafti sem fylgt hefur okkar stelpum síðustu vikurnar og ljóst að þær munu mæta fullar sjálfstrausts í þennan leik gegn Gróttu og ætla sér að sjálfsögðu sigur. Við þurfum á öllu Haukafólki að halda í Schenkerhöllina til að hvetja þær áfram til sigurs, sjáumst á vellinum.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta fylgst með honum á Hauka TV en slóðin er: http://tv.haukar.is/

Áfram Haukar!