Haukar sigruðu Álftanes 5-0 í 2. umferð 1. deildar kvenna, B riðils, í gærkvöldi á Ásvöllum. Staðan í hálfleik var 2-0.
Það var Margrét Ástvaldsdóttir sem skoraði fyrsta markið með glæsilegri aukaspyrnu á 8. mínútu og Alexandra Jóhannsdóttir bætti svo við öðru marki á 37. mínútu. Verðskulduð forysta í hálfleik.
Þriðja mark Hauka var sjálfsmark í byrjun seinni hálfleiks og svo bætti Alexandra við sínu öðru marki á 73. mínútu. Heiða Rakel Guðmundsdóttir skoraði svo fimmta mark Hauka á 83. mínútu.
Tveir sigrar í fyrstu tveimur leikjunum staðreynd og markatalan 8-2 – glæsileg byrjun.
Næsti leikur Hauka verður gegn Grindavík fimmtudaginn 2. júní kl. 17:30 í Grindavík.
Flott stemning var á vellinum í kvöld þrátt fyrir rigningu og fóru þar fremstar í flokki stúlkur í 4. flokki Hauka sem voru á trommunum.sma